39. Leit við Hafnarfjörð

F2 Leit að manni í og við Hafnarfjörð. Fjórir Kjalarmenn fóru til leitar við Hvaleyrarvatn og á hafnarsvæðinu á fjór- og reiðhjólum.

37. Umferðaróhapp

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins vegna áreksturs þriggja bíla á vesturlandsvegi. Fjórir menn mættu.

35. Vinnuslys

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins vegna vinnuslyss á Kjalarnesi. Einn Kjalarmaður fór á staðinn.

34. Veikindi

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins vegna veikinda á Kjalarnesi. Tveir menn fóru á staðinn á Kjöl 2.

29. Veikindi

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins vegna veikinda rétt utan Grundarhverfis. Þrír menn fóru á staðinn á Kjöl 1 og 2.

27. Veikindi

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins vegna veikinda í Grundarhverfi. Á sama tíma var mikið hríðarveður og vesturlandsvegur lokaður. Tveir menn fóru á staðinn á Kjöl 1.

19. Brjóstverkur

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bráðaveikinda í heimahúsi í Grundarhverfi. Fjórir Kjalarmenn mættu á staðinn á Kjöl 2.

18. Veikindi

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna veikinda í heimahúsi á Kjalarnesi. Einn maður fór á staðinn á Kjöl 2.

17. Leit í Garðabæ

F2 Leit að manni sem talinn var slasaður í Garðabæ. Þriðja útkallið á skömmum tíma og leitarmenn nú þegar klárir. Þrír Kjalarmenn með fjórhjól og Kjöl 1 tóku þátt. Viðkomandi fannst mjög fljótt.

16. Leit í Reykjavík

F2 Leit að ungri konu í vesturbæ Reykjavíkur. Útkallið kom um leið og leit lauk að ungum dreng og voru leitarmenn á svæðinu. Tvö fjórhjólateymi fóru í leitina ásamt Kjöl 1, alls 3 menn. Viðkomandi fannst eftir stutta leit.