Útköll 2026

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna einstaklings með brjóstverk í Kjós. Þrír félagar fóru á staðinn.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna einstaklings með brjóstverk. Þrír félagar fóru á staðinn.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna manns sem slasaðist á fæti í Brynjudal. Þrír fóru á vettvang.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þegar einstaklingur hrasaði og slasaðist. Þrír félagar fóru á staðinn.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna einstaklings í krampa. Þrír félagar fóru á vettvang.

F2 Útkall vegna manns sem festi sig á fjórhjóli við Svínaskarð um nótt. Ökumanninum var komið til byggða af Kjöl 1.

F2 Útkall vegna göngumanns sem slasaðist á fæti í Esjunni. Tvö fjórhjólateymi og þrír aðrir félagar aðstoðuðu sjúkraflutningamenn.

F1 Útkall þegar tveir ræðarar hvolfdu kajökum við Kjalarnes. Jetskíðin björguðu mönnunum úr sjó. Alls komu tíu Kjalarmenn að útkallinu.

F3 Útkall vegna bíls sem lenti utanvegar í á í Kjós. Aðstoð straumvatnsmanna þurfti til þess að ná til bílsins. Sjö Kjalarmenn tóku þátt.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þegar lítil rúta fauk og valt. Þrír Kjalarmenn fóru á slysstað.

F3 Appelsínugul veður viðvörun. Fastir bílar í Kjósarskarði og fokverkefni í Grundarhverfi. Tveir bílar og 6 manns sinntu.

F3 Lokun og viðbragðsstaða á vesturlandsvegi við Grundarhverfi vegna veðurs. Tvö teymi sinntu lokunarpósti.

F2 Leit að alzheimer sjúklingi í Reykjavík. Eitt fjórhjólateymi fór til leitar. Maðurinn fannst heill á húfi skömmu síðar.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna andlegra veikinda í Kjós. Fjórir Kjalarmenn fóru á staðinn.

F3 Lokun á vesturlandsvegi um Kjalarnes vegna hríðar og hvassviðris. Tveir hópar skiptu með sér vaktinni fram á kvöld.

F3 Lokun á vesturlandsvegi og viðbragð vegna stórhríðar og appelsínugulrar viðvörunar. Sjö manns komu að verkefninu.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna meðvitundarleysis í Grundarhverfi. Þrír félagar fóru á staðinn.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bráðaveikinda á Kjalarnesi. Einn félagi fór á vettvang.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna slyss í Grundarhverfi. Einn Kjalarmaður fór á slysstað.

F3 Leit að unglingi sem óttast var um á Akranes svæðinu. Fjögur ökutæki og fimm manns fóru til leitar um kvöldið og nóttina.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna brjóstverks á Kjalarnesi. Einn fór á vettvang.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bráðaveikinda í Kjós. Fimm menn fóru á vettvang.

F2 Útkall vegna gróðurelda í grennd við Heiðmörk. Tvö fjórhjólateymi fóru til aðstoðar Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

F1 Útkall vegna kajakræðara sem talinn var vera í hættu í Skerjafirði. Jetskíði voru klár þegar ljóst var að um var að ræða ísjaka.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna áreksturs á Kjalarnesi. Þrír fóru á vettvang í lok útkalls.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna slyss við Þórufoss í Kjós. Fjórir Kjalarmenn fóru á slysstað.

F2 Leit að unglingi sem óttast var um í grennd við Hafnarfjörð. Fjórir Kjalarmenn og tvö fjórhjól komu að leitinni.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna falls við Gljúfurá í Esju. Einn fór á vettvang.

F3 Leit að manni frá Árbæ, sem saknað hafði verið í nokkra daga. Eitt fjórhjólateymi fór til leitar.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna yfirvofandi fæðingar í bíl. Kjölur lagði af stað – afturkallað.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna slyss í heimahúsi. Einn Kjalarmaður fór á vettvang.

F2 Leit að göngumönnum á Hellisheiði. Eitt fjórhjólateymi var klárt í bækistöð þegar í ljós kom að menn voru heilir á húfi.

Útköll eftir árum: