Útköll 2026

F3 Útkall vegna bíls sem lenti utanvegar í á í Kjós. Aðstoð straumvatnsmanna þurfti til þess að ná til bílsins. Sjö Kjalarmenn tóku þátt.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þegar lítil rúta fauk og valt. Þrír Kjalarmenn fóru á slysstað.

F3 Appelsínugul veður viðvörun. Fastir bílar í Kjósarskarði og fokverkefni í Grundarhverfi. Tveir bílar og 6 manns sinntu.

F3 Lokun og viðbragðsstaða á vesturlandsvegi við Grundarhverfi vegna veðurs. Tvö teymi sinntu lokunarpósti.

F2 Leit að alzheimer sjúklingi í Reykjavík. Eitt fjórhjólateymi fór til leitar. Maðurinn fannst heill á húfi skömmu síðar.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna andlegra veikinda í Kjós. Fjórir Kjalarmenn fóru á staðinn.

F3 Lokun á vesturlandsvegi um Kjalarnes vegna hríðar og hvassviðris. Tveir hópar skiptu með sér vaktinni fram á kvöld.

F3 Lokun á vesturlandsvegi og viðbragð vegna stórhríðar og appelsínugulrar viðvörunar. Sjö manns komu að verkefninu.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna meðvitundarleysis í Grundarhverfi. Þrír félagar fóru á staðinn.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bráðaveikinda á Kjalarnesi. Einn félagi fór á vettvang.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna slyss í Grundarhverfi. Einn Kjalarmaður fór á slysstað.

F3 Leit að unglingi sem óttast var um á Akranes svæðinu. Fjögur ökutæki og fimm manns fóru til leitar um kvöldið og nóttina.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna brjóstverks á Kjalarnesi. Einn fór á vettvang.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna bráðaveikinda í Kjós. Fimm menn fóru á vettvang.

F2 Útkall vegna gróðurelda í grennd við Heiðmörk. Tvö fjórhjólateymi fóru til aðstoðar Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

F1 Útkall vegna kajakræðara sem talinn var vera í hættu í Skerjafirði. Jetskíði voru klár þegar ljóst var að um var að ræða ísjaka.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna áreksturs á Kjalarnesi. Þrír fóru á vettvang í lok útkalls.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna slyss við Þórufoss í Kjós. Fjórir Kjalarmenn fóru á slysstað.

F2 Leit að unglingi sem óttast var um í grennd við Hafnarfjörð. Fjórir Kjalarmenn og tvö fjórhjól komu að leitinni.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna falls við Gljúfurá í Esju. Einn fór á vettvang.

F3 Leit að manni frá Árbæ, sem saknað hafði verið í nokkra daga. Eitt fjórhjólateymi fór til leitar.

F1 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna yfirvofandi fæðingar í bíl. Kjölur lagði af stað – afturkallað.

F2 Útkall á vegum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna slyss í heimahúsi. Einn Kjalarmaður fór á vettvang.

F2 Leit að göngumönnum á Hellisheiði. Eitt fjórhjólateymi var klárt í bækistöð þegar í ljós kom að menn voru heilir á húfi.

Útköll eftir árum: